Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Breiðablik fær heimaleikinn í úrslitaleiknum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik og Víkingur mætast í úrslitaleik Lengjubikars kvenna á laugardag. Leikurinn hefst klukkan 14:30 og fer fram á Kópavogsvelli. Breiðablik sigraði Stjörnuna í undanúrslitum og Víkingur lagði Þrótt að velli.

Breiðablik er núverandi handhafi titilsins eftir að hafa unnið 4-1 sigur á Þór/KA í úrslitaleik keppninnar fyrir ári síðan.

Breiðablik vann Bestu deildina og Mjólkurbikarinn á síðasta tímabili. Víkingur endaði í fimmta sæti deildarinnar í fyrra eftir að hafa farið illa af stað.

Breiðablik mætir svo FH í Meistarakeppni KSÍ í næstu viku, fimmtudaginn 2. apríl, þegar FH kemur í heimsókn á Kópavogsvöll.
Slapp
Athugasemdir
banner