Það hefur verið nokkuð mikið fjallað um það að undanförnu að Borussia Dortmund vilji fá Jadon Sancho aftur í sínar raðir í sumar.
Samningur hans við Manchester United rennur út í sumar og verður ekki framlengt við hann þar.
Samningur hans við Manchester United rennur út í sumar og verður ekki framlengt við hann þar.
Hans-Joachim Watzke, forseti félagsins, er sagður sérstaklega ákveðinn í að fá Sancho aftur til Dortmund. Samkvæmt Bild ætlar Dortmund þó að setja kantmanninum ákveðin skilyrði ef hann ákveður að snúa aftur á Westfalenstadion, og þau eru alls ekki lítilvæg.
Ólíkt því sem tíðkast í fótboltanum vill Dortmund ekki greiða Sancho undirskriftarbónus, þrátt fyrir að hann verði laus á frjálsri sölu í sumar. Forráðamenn félagsins telja að frammistaða hans undanfarin ár réttlæti það og búast við að hann samþykki það.
Þá er einnig gert ráð fyrir að Sancho lækki launakröfur sínar verulega. Kantmaðurinn, sem er sagður vera á um 15 milljónum evra á ári, þyrfti að sætta sig við mun lægri laun hjá Dortmund.
Sancho naut sín best hjá Dortmund þar sem hann spilaði á árunum 2017 til 2021 og þróaðist í einn af efnilegustu leikmönnum Evrópu. Hann sneri síðar aftur á láni og fór alla leið í úrslit Meistaradeildarinnar með liðinu.
Síðustu ár hafa hins vegar verið erfið. Hann hefur aldrei fundið sig sérstaklega vel hjá Manchester United og lánsdvalir hans, fyrst hjá Chelsea og nú hjá Aston Villa, hafa ekki gengið upp.
Athugasemdir


