Sigurður Heiðar Höskuldsson hefur unnið sig inn í hug og hjörtu Þórsara með því að koma liðinu upp í Bestu deildina á nýjan leik.
Siggi á það núna á ferilskránni að hafa komið tveimur liðum upp úr Lengjudeildinni en hann gerði það með Leikni á sínum tíma líka. Honum tókst að halda Leikni uppi í kjölfarið á því að liðið fór upp og verður fróðlegt að sjá hvort þessi hæfileikaríki þjálfari geri slíkt hið sama með Akureyrarliðið í sumar.

Samfélagsmiðlastjarnan Logi Páll Aðalsteinsson og íþróttafréttamaðurinn Aron Elvar Finnsson eru stuðningsmenn Þórs en þeir töluðu mjög vel um Sigga í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net á dögunum.
„Þetta er bara snillingur," sagði Logi Páll.
„Hann er hausinn og hjartað í liðinu, eins og hann er á hliðarlínunni. Hann smellpassar inn í Þorpið, alveg eins og flís við rass. Hann keyrir upp geðveikina og það er nákvæmlega það sem við viljum. Ég vona að hann verði þarna þangað til hann deyr," sagði Aron Elvar.
Hægt er að hlusta á Niðurtalninguna í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Athugasemdir