Fyrstu umferð Lengjudeildarinnar lauk nú undir kvöld með tveimur leikjum. Sjö mörk litu dagsins ljós í leikjum tveimur en þau skiptust nokkuð ójafnt á milli valla
HK 4 - 1 Grótta
0-1 Jónatan Ari Bragason ('30 )
1-1 Karl Ágúst Karlsson ('42 )
2-1 Karl Ágúst Karlsson ('53 )
3-1 Dominik Radic ('67 )
4-1 Jóhann Þór Arnarsson ('82 )
Lestu um leikinn
Í Kórnum tóku heimamenn í HK á móti nýliðum Gróttu. Jónatan Ari Bragason kom þar gestunum af Seltjarnarnesi yfir eftir hálftíma leik en HK náði inn jöfnunarmarki er Karl Ágúst Karlsson skoraði úr því sem næst ómögulegri stöðu á 42. mínútu.
Karl Ágúst var aftur á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks er hann kom boltanum fram hjá Guðmundi Rafni Ingasyni markverði Gróttu en fram að markinu hafði Grótta sótt nokkuð ákveðið.
Dominik Radic bætti við marki á 67. mínútu er hann setti boltann í netið eftir sendingu frá Atla Hrafni Andrasyni af stuttu færi. Það var svo Jóhann Þór Arnarsson sem gerði fjórða og síðasta mark HK í leiknum er hann setti boltann fram hjá illa staðsettum Guðmundi í marki Gróttu eftir góðan sprett.
Völsungur 1 - 1 Leiknir R.
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('15 )
1-1 Tómas Bjarni Baldursson ('84 )
Lestu um leikinn
Á Húsavík tók Völsungur með Hallgrím Mar Steingrímsson í starfsliðinu á móti Leikni R. Gestirnir úr Breiðholti byrjuðu leikinn betur og uppskáru mark þegar Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði með góðu skoti úr teignum eftir undirbúning Shkelzen Veseli.
Heimamönnum óx ásmegin í leiknum eftir að hafa lent undir og var leikurinn nokkuð líflegur þó mörkin hafi staðið á sér. Á 84. mínútu leiksins leit annað mark þó dagsins ljós og var þar að verki Tómas Bjarni Baldursson sem jafnaði fyrir heimamenn eftir stoðsendingu Arons Bjarka Kristjánssonar.
Lokatölur á Húsavík 1-1


