Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. september 2018 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Forseti Real Madrid: Ronaldo mun snúa aftur
Cristiano Ronaldo í leik með Juventus
Cristiano Ronaldo í leik með Juventus
Mynd: Getty Images
Florentino Perez, forseti Real Madrid á Spáni, er viss um að Cristiano Ronaldo ákveði að snúa aftur til félagsins í framtíðinni.

Ronaldo yfirgaf Real Madrid í sumar og samdi við Juventus en hann hafði spilað í níu ár fyrir Madrídinga.

Ronaldo vann fimmtán titla með Madrídingum og var fjórum sinnum valinn besti leikmaður heims á tíma sínum þar.

Hann er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins og er Perez viss um að Ronaldo eigi eftir að snúa aftur á Santiago Bernabeu.

„Cristiano mun alltaf lifa í hjörtum Madrídinga. Ef ég myndi sjá hann í dag þá myndi ég faðma hann. Ronaldo er verðugur arftaki Alfredo Di Stefano og hann mun snúa aftur," sagði Perez.
Athugasemdir
banner
banner
banner