Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 16:40
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Besta deildin, Lárus Orri, TG9 og EM á X977 á morgun
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður í beinni á X977 á morgun laugardag milli 12 og 14. Elvar Geir verður í fiskabúrinu og Valur Gunnars með honum í fjarveru Tómasar Þórs sem er kominn í sumarfrí.

Besta deildin verður burðarefni þáttarins eins og oftast. Föstudagsleikirnir í Bestu deildinni verða gerðir upp og spáð í sunnudagsleikina. Lárus Orri Sigurðsson, nýr þjálfari ÍA, verður í stuttu spjalli.

Tryggvi Guðmundsson verður á línunni frá Vestmanneyjum og rætt við hann um Bestu deildina, markametið og fleira.

EM kvenna er að fara af stað. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fréttamaður Fótbolta.net hefur varið í vikunni í Serbíu og fylgst með undirbúningi íslenska kvennalandsliðsins áður en þær halda til Sviss. Guðmundur verður á línunni.

Einnig verður fjallað um Lengjudeildina, undanúrslit bikarsins, dráttinn í 16-liða úrslit Fótbolta.net bikarsins og fleira.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner