Arsenal hefur verið í viðræðum varðandi Eberechi Eze hjá Crystal Palace og hefur áhuga á að kaupa hann. Mirror segir að Andrea Berta, yfirmaður íþróttamála hjá Arsenal, hafi rætt við umboðsmenn leikmannsins.
Eze er 26 ára gamall en Tottenham hefur sýnt honum áhuga. Eze var áður í unglingakerfi Arsenal en var látinn fara þegar hann var þrettán ára.
Arsenal hefur sýnt fleiri leikmönnum áhuga, eins og Rodrygo frá Real Madrid sem gæti kostað 70 milljónir punda og Benjamin Sesko, ramherja hjá RB Leipzig. Þeir standa einnig í samningsviðræðum við varnarmanninn William Saliba um nýjan samning.
Félagið er nálægt því að klára kaup á Cristhian Mosquera, varnarmanni hjá Valencia, og er að ganga frá félagaskiptum Christian Nörgaard frá Brentford og Martin Zubimendi frá Real Sociedad. Þá mun markvörður Chelsea, Kepa Arrizabalaga, ganga í raðir Arsenal.
Athugasemdir