Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 17:00
Elvar Geir Magnússon
Skotlandsmeistararnir fá sænskan landsliðsmann
Mynd: EPA
Sænski kantmaðurinn Benjamin Nygren hefur gengið til liðs við Celtic frá Nordsjælland í Danmörku. Nygren, sem er 23 ára gamall, hefur skrifað undir fimm ára samning við Skotlandsmeistarana.

Hann hefur skorað 35 mörk í 107 leikjum fyrir danska félagið en hann lék áður fyrir Gautaborg, Genk og Heerenveen.

Nygren hefur einnig spilað fjóra A-landsleiki fyrir Svíþjóð og skorað tvö mörk. Brendan Rodgers, stjóri Celtic, lýsir honum sem „spennandi og gæða leikmanni sem mun styrkja sóknarleik liðsins.".

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið rúmlega 200 leiki á ferlinum og var fjórði markahæsti leikmaður í sögu Nordsjaelland á aðeins þremur og hálfu tímabili. Hann var einnig fyrirliði liðsins í nokkrum leikjum á síðasta tímabili.
Athugasemdir