
Kelleher hefur spilað 67 leiki fyrir Liverpool, þar af 46 á síðustu tveimur keppnistímabilum. Írski landsliðsmarkvörðurinn hefur verið hjá Liverpool frá 17 ára aldri.
Þýska stórveldið Bayer Leverkusen er í viðræðum við enska úrvalsdeildarfélagið Brentford um félagaskipti fyrir markvörðinn Mark Flekken.
Flekken er aðalmarkvörður Brentford og er Hákon Rafn Valdimarsson varamarkvörður félagsins.
Sky segir að Brentford vilji fá 15 milljónir punda fyrir Flekken en Leverkusen er að reyna að kaupa hann fyrir minna.
Brentford setti sig í samband við Liverpool til að spyrjast fyrir um varamarkvörð félagsins Caoimhín Kelleher, en Englandsmeistararnir vilja fá rúmlega 20 milljónir punda fyrir hann.
Leeds og West Ham United eru einnig áhugasöm um Kelleher, en verðmiðinn gæti fælt þau frá.
Flekken, 31 árs, er með tvö ár eftir af samningi sínum við Brentford á meðan Kelleher, 26 ára, er aðeins með eitt ár eftir hjá Liverpool.
Athugasemdir