Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 08:22
Elvar Geir Magnússon
Mount: Man Utd getur unnið titilinn á næsta ári
Markmið Mount er að verða Englandsmeistari.
Markmið Mount er að verða Englandsmeistari.
Mynd: EPA
Það eru þrettán ár síðan Manchester United varð Englandsmeistari en Mason Mount, leikmaður liðsins, segir að liðið sé með getuna og hugarfarið til að vinna titilinn á næsta tímabili.

United endaði í 15. sæti á síðasta tímabili en með sigri gegn Liverpool á sunnudag getur liðið tryggt sér sæti í Meistaradeildinni.

„Ég hef unnið Meistaradeildina og er með það markmið að vinna ensku úrvalsdeildina. Getum við gert það? Já ég tel að við getum það," segir Mount.

„Það gæti virst eins og þetta sé nokkuð fjarlægt en við þurfum að vera með rétta hugarfarið. Við höfum þegar sýnt hvað við getum gert gegn bestu liðunum; Man City, Liverpool, Arsenal, Chelsea. Nú snýst þetta um að framkvæma það í Meistaradeildinni og með meiri stöðugleika í úrvalsdeildinni."

Mount hefur komið við sögu í 20 af 34 leikjum United í úrvalsdeildinni en aðeins byrjað 10.

„Ég elska að vera hluti af risastóru félagi. Það verða miklu fleiri leikir á næsta tímabili. Að vera hluti af þeirri vinnu að koma liðinu aftur í fremstu röð er sérstök upplifun," segir Mount.


Slapp
banner
banner
banner
banner