Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 15:24
Elvar Geir Magnússon
Mudryk fær fjögurra ára bann og áfrýjar til CAS
Mykhailo Mudryk.
Mykhailo Mudryk.
Mynd: EPA
Mykhailo Mudryk hefur farið með baráttu sína gegn lyfjabanni enska fótboltasambandsins fyrir alþjóðlega íþróttadómstólinn CAS í Sviss, sem er æðsta dómsstig íþrótta.

Þessi 25 ára úkraínski landsliðsmaður sem er hjá Chelsea hefur ekki spilað í næstum átján mánuði eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í desember 2024 þegar óeðlileg niðurstaða kom úr þvagprufu.

Enska sambandið ákærði Mudryk í júní 2025 og hann hefur nú fengið hámarksrefsingu, eða fjögurra ára keppnisbann.

CAS staðfestir að málinu hafi verið áfrýjað og sé komið á borð dómstólsins; nú sé verið að taka á móti skriflegum upplýsingum um það. Ekki er vitað hvenær það verður tekið fyrir.

Það var lyfið meldóníum, sem getur aukið öndunargetu og þrek, sem felldi Mudryk en hann neitar að hafa tekið það visvítandi.

Mudryk vill snúa aftur í fótboltann á þessu ári og heldur sér í formi með því að æfa hjá utandeildarliðinu Uxbridge FC með einkaþjálfara.
Slapp
banner
banner
banner