Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 14:00
Elvar Geir Magnússon
Börsungar hafa áhuga á leikmönnum Tottenham
Mynd: EPA
Tottenham er í mikilli fallhættu og önnur félög horfa á möguleika á því að geta sótt helstu leikmenn liðsins á útsöluverði ef fall raungerist.

Eitt af þeim félögum er Barcelona sem er með nokkra leikmenn Spurs undir sinni smásjá en þar á meðal er argentínski miðvörðurinn Cristian Romero.

Sport segir Börsunga þegar hafa lýst yfir áhuga við umboðsmann Romero en hann hakar í nokkur box sem þeir leita eftir; leiðtogahæfni, reynslu og barátta einn gegn einum.

Atletico Madrid hefur einnig áhuga á Romero.

Romero er ekki einu leikmaðurinn sem er sagður á blaði Barcelona en Micky van de Ven, Xavi Simons og Lucas Bergvall hafa einnig verið orðaðir við félagið.
Slapp
banner
banner
banner