Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anton Ari: Seinagangur í mér að þetta var ekki frágengið fyrr
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ari Einarsson skrifaði undir nýjan samning við Breiðablik á dögunum og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2028. Hann kom til Breiðabliks fyrir tímabilið 2020 og hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari með Blikum.

Anton Ari er í flugumferðarstjórnunarnámi og hann ræddi við Fótbolta.net um nýja samninginn og hvernig hann tvinnir náminu og fótboltanum saman.

„Það var aldrei spurning um annað en að skrifa undir hjá Breiðabliki. Það hefði í raun verið hægt að ganga frá þessu mun fyrr ef það hefði ekki verið fyrir seinagang hjá mér, ég var bara með nóg að gera og þetta beið aðeins. Það var ekki þannig að mig langaði að bíða og sjá hvort að aðrir möguleikar kæmu upp, ég vildi vera áfram," segir Anton Ari sem er mjög ánægður með að vera búinn að skrifa undir nýjan samning. Fyrri samningur hefði runnið út eftir tímabilið í ár.

En hvernig gengur að samtvinna náminu og fótboltanum, og svo í framhaldinu vinnunum tveimur, það verða engir árekstrar?

„Þetta er púsluspil sem hefur gengið upp hingað til. Ég er það heppinn að ég er með gott bakland og þetta hefur einhvern veginn gengið upp, ég er mjög þakklátur þeim sem hafa hjálpað til við það. Ég er enn í náminu og hluti af því er að vera á námsvöktum. Ég á að klára næsta vetur og það verður eiginlega að koma í ljós hvernig verður þá með vinnuna. Ég er svolítið þannig týpa að ég spái ekki of mikið í því hvernig hlutirnir gætu orðið, þetta fer eins og það fer. Hingað til allavega hefur þetta gengið mjög vel hingað til og vonandi gerir það áfram," segir markvörðurinn öflugi.
Slapp
banner
banner
banner