Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 08:36
Elvar Geir Magnússon
Simeone feðgar létu í sér heyra þegar White labbaði yfir merkið
White gengur beint fyrir merki Atletico.
White gengur beint fyrir merki Atletico.
Mynd: Marca/X
Giuliano Simeone.
Giuliano Simeone.
Mynd: EPA
Það er heldur betur spenna í undanúrslitaeinvígi Arsenal og Atletico Madrid í Meistaradeildinni. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í gær og mætast í seinni leiknum á Emirates næsta þriðjudag.

Það gekk mikið á í leiknum í gær, bæði mörkin komu af vítapunktinum og þá var þriðja vítið dæmt í lokin fyrir Arsenal en tekið til baka eftir umdeilda VAR skoðun.

Það gekk ýmislegt á utan vallarins líka en enskir fjölmiðlar segja að Arsenal hafi látið mæla lengdina á grasi vallarins fyrir leik. Atletico hefur verið sakað um að láta völlinn vera óvenjulega loðinn í stórleikjum.

UEFA lét skoða grasið en það reyndist vera innan löglegra marka og því ekkert vafasamt hjá spænska félaginu þar.

Ben White hefur svo komið sér í fréttirnar fyrir að hafa labbað yfir merki Atletico Madrid á leið til búningsklefa eftir leikinn. Það fór í taugarnar á heimamönnum, þar á meðal stjóranum Diego Simeone.

Madrídarmenn líta á að merki félagsins sé heilagt og ætlast til þess að því sé sýnd virðing og gengið framhjá því. White hefur væntanlega ekki gert sér grein fyrir því og Simeone feðgar voru ekki sáttir. Á upptöku sést fyrst Giuliano Simeone, leikmaður Atletico, láta White heyra það áður en faðir hans skerst í leikinn.


Slapp
banner
banner
banner