Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   mið 29. apríl 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Yngsti bróðirinn semur við Breiðablik
Mynd: Breiðablik
Þór Andersen Willumsson er búinn að skrifa undir sinn fyrsta samning við Breiðablik og fetar þar með í fótspor eldri bræðra sinna.

Þór er yngsti bróðir Willums Þórs Willumssonar og Brynjólfs Andersen Willumssonar sem leika báðir sem atvinnumenn í efstu deild hollenska boltans og eiga landsleiki að baki fyrir Íslands hönd.

Þór er aðeins 16 ára gamall og er algjör lykilmaður í 2. flokki hjá Breiðabliki þar sem hann hefur verið að raða inn mörkunum að undanförnu. Í fyrra tók hann þátt í sínum fyrstu landsleikjum og er með eitt mark í þremur leikjum fyrir U16 landslið Íslands.

Faðir drengjanna er Willum Þór Þórsson, stjórnmálamaður og fyrrum þjálfari stórvelda KR og Vals.


Slapp
banner
banner
banner