Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu Þróttara í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna. Liðið fékk Fram í heimsókn í kvöld sem tapaði gegn ÍBV í sjö marka leik í fyrstu umferð.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var nálægt því að koma Blikum yfir eftir stundafjórðung en Ashley Brown Orkus í marki Fram gerði vel að koma í veg fyrir það.
Stuttu síðar komst Sara Svanhildur Jóhannsdóttir í dauðafæri fyrir framan mark Blika en skaut rétt framhjá.
Staðan var markalaus í hálfleik en Blikar náðu forystunni eftir tæplega klukkutíma leik þegar Agla María Albertsdóttir átti fyrirgjöf og Líf Joostdóttir van Bemmel skallaði boltann í netið.
Barbára Sól Gísladóttir innsiglaði sigur Blika tíu mínútum síðar þegar hún skoraði með góðu skoti.
Stjarnan, sem tapaði gegn Víkingum í fyrstu umferð, fékk Val í heimsókn í kvöld en Valur vann Grindavík/Njarðvík í fyrstu umferð.
Murielle Tiernan var nálægt því að koma Stjörnunni yfir strax í upphafi leiks en Tinna Brá varði frábærlega frá henni. Stjarnan var betri aðilinn í fyrri hálfleik en staðan var markalaus í hálfleik.
Stjarnan náði forystunni eftir klukkutíma leik þegar Birna Jóhannsdóttir kom boltanum í netið eftir mikinn darraðadans inn á teignum.
Jana Sól Valdimarsdóttir innsiglaði sigurinn í lokin þegar hún slapp ein í gegn.
Breiðablik 2 - 0 Fram
1-0 Líf Joostdóttir van Bemmel ('57 )
2-0 Barbára Sól Gísladóttir ('67 )
Lestu um leikinn
Stjarnan 2 - 0 Valur
1-0 Birna Jóhannsdóttir ('61 )
2-0 Jana Sól Valdimarsdóttir ('90 )
Lestu um leikinn
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Breiðablik | 2 | 2 | 0 | 0 | 4 - 0 | +4 | 6 |
| 2. Stjarnan | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 2 | +1 | 3 |
| 3. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 2 - 3 | -1 | 3 |
| 4. Víkingur R. | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 1 | +1 | 3 |
| 5. ÍBV | 1 | 1 | 0 | 0 | 4 - 3 | +1 | 3 |
| 6. FH | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 7. Þór/KA | 1 | 0 | 1 | 0 | 1 - 1 | 0 | 1 |
| 8. Fram | 2 | 0 | 0 | 2 | 3 - 6 | -3 | 0 |
| 9. Grindavík/Njarðvík | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 2 | -1 | 0 |
| 10. Þróttur R. | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 - 2 | -2 | 0 |



