Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gunnhildur Yrsa tekur að sér fleiri störf hjá KSÍ
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur verið ráðin yfirmaður hæfileikamótunar N1 og KSÍ kvenna og landsliðsþjálfari U15 kvenna. Hún mun hefja störf þann 1. maí.

Hún er í þjálfarateymi A landsliðs kvenna og mun halda áfram að sinna því starfi ásamt öðrum verkefnum sem hún hefur verið í.

Gunnhildur Yrsa er 37 ára gömul en hún lék nær allan sinn feril hér á landi með Stjörnunnni fyrir utan eitt tímabil með Val. Hún spilaði í atvinnumennsku frá 2013-2022.

Hún á 102 landsleiki að baki og skoraði í þeim 14 mörk. Hún spilaði á tveimur Evrópumótum með landsliðinu.
Slapp
banner
banner
banner