Fjórar umferðir eru að baki í Bestu deildinni og til gamans stendur Fótbolti.net fyrir kosningu á leikmanni mánaðarins. Kosningin stendur yfir á forsíðu og henni lýkur á föstudag.
Fjórir eru tilnefndir, einn fulltrúi úr hverju af efstu fjórum liðum deildarinnar.
Fjórir eru tilnefndir, einn fulltrúi úr hverju af efstu fjórum liðum deildarinnar.

Anton Ari Einarsson - Breiðablik
Hefur verið besti markvörður deildarinnar í upphafi móts og haldið hreinu í þremur af fjórum leikjum. Hann gerði vissulega mistök í fyrstu umferð þegar Gylfi Þór Sigurðsson skoraði en hefur þess utan verið öryggið uppmálað og spilað gríðarlega vel.

Aron Sigurðarson - KR
Fann sig ekki í fyrstu umferð en er búinn að vera algjörlega óstöðvandi síðan og skorað fimm mörk og þrjár stoðsendingar fyrir KR sem er með fullt hús á toppi deildarinnar.

Elías Már Ómarsson - Víkingur
Tók sér undirbúningstímabilið í að aðlagast og læra inn á nýja samherja og hefur síðan verið algjörlega frábær síðan alvaran fór af stað. Hefur skorað fimm mörk og er markahæstur ásamt Aroni.

Hólmar Örn Eyjólfsson - Valur
Hefur verið gríðarlega öflugur í vörn Valsmanna og varla tapað skallaeinvígi. Að auki hefur hann lagt sitt á vogarskálarnar sóknarlega og skorað tvö mörk.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 4 | 4 | 0 | 0 | 18 - 8 | +10 | 12 |
| 2. Víkingur R. | 4 | 3 | 1 | 0 | 10 - 3 | +7 | 10 |
| 3. Valur | 4 | 3 | 0 | 1 | 10 - 5 | +5 | 9 |
| 4. Breiðablik | 4 | 2 | 2 | 0 | 6 - 1 | +5 | 8 |
| 5. Fram | 4 | 2 | 1 | 1 | 11 - 6 | +5 | 7 |
| 6. Stjarnan | 4 | 2 | 0 | 2 | 10 - 11 | -1 | 6 |
| 7. Þór | 4 | 2 | 0 | 2 | 5 - 10 | -5 | 6 |
| 8. Keflavík | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 - 7 | -2 | 4 |
| 9. ÍA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 9 | -5 | 2 |
| 10. KA | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 - 8 | -4 | 1 |
| 11. FH | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 11 | -6 | 1 |
| 12. ÍBV | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 14 | -9 | 1 |




