Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 11:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Anton Ari ræðir atvikið umdeilda - „Þá hefði ég notað hnefann"
Haldið hreinu í þremur leikjum af fjórum.
Haldið hreinu í þremur leikjum af fjórum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þetta er væntanlega það sem Anton ætlaði sér að gera á móti Þór.
Þetta er væntanlega það sem Anton ætlaði sér að gera á móti Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigfús Fannar kom boltanum í netið en var brotlegur.
Sigfús Fannar kom boltanum í netið en var brotlegur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á landsliðsæfingu síðasta haust. Anton Ari er þriðji markvörður landsliðsins.
Á landsliðsæfingu síðasta haust. Anton Ari er þriðji markvörður landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kom til Breiðabliks fyrir tímabilið 2020.
Kom til Breiðabliks fyrir tímabilið 2020.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar flautaði aukaspyrnu og markið fékk ekki að standa.
Vilhjálmur Alvar flautaði aukaspyrnu og markið fékk ekki að standa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfari Þórs hefði viljað sjá markið standa.
Þjálfari Þórs hefði viljað sjá markið standa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er með átta stig eftir fjóra leiki og hefur einungis fengið á sig eitt mark í Bestu deildinni til þessa. Á milli stanganna í marki Breiðabliks stendur landsliðsmarkvörðurinn Anton Ari Einarsson og hefur hann spilað virkilega vel það sem af er móti. Hann er einn af fjórum sem tilnefndir eru sem leikmaður aprílmánaðar í deildinni.

Fótbolti.net ræddi við Anton um byrjunina á mótinu.

„Ég myndi segja að þetta sé fínt eftir fjóra leiki, auðvitað er svigrúm fyrir bætingar en það er nú oftar en ekki þannig. Við erum búnir að vera meira solid varnarlega og svigrúmið fyrir bætingar hefur verið sóknarmegin. Vonandi er það eitthvað sem mun hrökk í gang og hrökk að einhverju leyti í gang á móti Þór í síðasta leik, vonandi heldur það áfram," segir markvörðurinn.

Menn settu axlirnar niður
Var eitthvað samtal um sóknarleikinn eftir Keflavíkurleikinn?

„Ekkert sérstakt eftir þann leik. Eftir alla leiki almennt er farið yfir leikina, tekin yfirferð yfir það sem gekk vel og það sem betur má fara. Við sáum líka hluti í Skagaleiknum og Víkingsleiknum sem mátti gera betur. Keflavíkurleikurinn var erfiðari út af aðstæðum, það var ekki hægt að spila einhvern brasilískan bílastæðafótbolta. Það var bara áframhaldandi samtal um að við þyrftum að fara finna okkur í ákveðnum hlutum."

Hvað gekk sérstaklega upp á móti Þór, af hverju náið þið að springa svona út sóknarlega?

„Byrjunin var ekkert sérstök af okkar hálfu en við vöknum eftir einhvern tíma. Þetta snýst að einhverju leyti um að menn slaka á, setji axlirnar niður og leyfa flæðinu að koma til sín. Ef það gerist þá vilja menn meira fá boltann, auðveldara að búa til tengingar milli manna, boltinn fer að rúlla hraðar og þetta verður meira léttleikandi. Það var meira um það í leiknum á móti Þór."

Auðveldara að lifa með því þegar ákvörðunin er rétt
Anton Ari hefur haldið hreinu í síðustu þremur leikjum og átti mjög góðan leik gegn Þór. Þú gerðir þessi slæmu mistök á móti Víkingi sem kostuðu mark, fannst þér auðvelt að þurrka mistökin í burtu?

„Ég segi ekki auðvelt, en þetta er ekkert í fyrsta sinn sem ég hefði viljað vera til í að gera betur. Þetta er bara hluti af þessu og maður er farinn að lifa aðeins meira með þessu heldur en maður gerði kannski snemma á ferlinum. Í óhappinu á móti Víkingi þá var ákvörðunin sem slík rétt, en framkvæmdin var ekki nógu góð, ég hitti bara ekki boltann nógu vel. Ég get ekki farið út á völl og reynt að bæta þetta, þetta gerðist bara. Það er auðveldara að lifa með því þegar ákvörðunin var rétt þegar eitthvað svona gerist, frekar en þegar maður er í þvælu-ákvörðunum. Það situr meira í mér."

Getur reynt á hausinn ef það er lítið að gera
Á móti Þór þurfti markvörðurinn strax að verja dauðafæri þegar Ágúst Eðvald Hlynsson komst einn á móti honum. Fá menn sjálfstraust inn í leikinn við slíkar vörslur?

„Það getur alveg gert það. Útileikmenn tala oft um fyrsta einvígi, fara í það á fullri ferð og nota það sem bensín. Við markmenn getum ekki beint gert það, getum ekki valið hluti til að vaða í. Við spilum með þau spil sem okkur eru gefin. Það getur verið fínt að fá eitthvað að gera til að komast í takt. Það þarf ekki að vera dauðafæri, bara einhver þáttur leiksins sem maður nær að gera vel. Það getur aðeins reynt á hausinn ef maður fær ekki að gera neitt fyrstu 10-12 mínúturnar, þá fer mann að þyrsta í að gera eitthvað. Það er fínt að rífa plásturinn af og gera eitthvað strax. Það þarf ekki að vera stórbrotin varsla, þess vegna er nóg að fá þægilegan kross sem maður grípur."

Þú hefur mætt Gústa oft á æfingum. Hugsaðir þú eitthvað sérstaklega hvað hann myndi gera?

„Það var ekkert sérstakt þannig. Ég reyndi að koma aðeins út á móti, minnka markið og gera mig síðan stóran. Þetta var ekkert öðruvísi þó að þetta hafi verið Gústi."

„Hann heldur mér niðri"
Í stöðunni 2-0 fyrir Breiðabliki kom Sigfús Fannar Gunnarsson boltanum í netið hjá Antoni Ara en dæmd var aukaspyrna. Hvað gerist?

„Þetta var bara klassískur barningur framan af en þegar boltinn fer að nálgast þá heldur hann í hægri hendina mína. Það er helvíti krefjandi að ætla fara grípa boltann eða gera einhverjar gloríur ef þú óvænt getur ekki notað báðar hendurnar þegar planið var að gera það. Hann heldur mér niðri en ég get náð annarri hendinni upp. Það voru merki um að þetta fór ekki samkvæmt plani hjá mér þegar það fer þannig að ég slæ boltann með lófanum á vinstri höndinni inn í teiginn. Ef ég hefði ætlað að kýla boltann, verið meðvituð ákvörðun, þá hefði ég notað hnefann og sett boltann sem lengst í burtu. Ég ætlaði bara að fara með báðar hendur upp og grípa boltann, en það var ekki í boði að fara með hægri höndina upp. Þá fór þetta svona. Ég veit ekki hvort að þetta sjáist ekki vel af því að það var bara ein myndavél á leiknum eða hvort það sé einhver umræða um þetta, en það var klárt mál að hann hélt bara í höndina. Það er ekkert gagn fyrir hann að halda í hægri höndina nema til þess að brjóta."

„Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur, en þetta var 'single-cam' leikur og það getur vel verið að þetta líti út fyrir að hafa verið eitthvað sprell í mér. En það var bara haldið í höndina, ég gat ekki farið upp með báðar hendur til þess að grípa boltann,"
segir Anton Ari. Í spilaranum hér að neðan má sjá umræðu um atvikið í Stúkunni á SÝN Sport. Í seinni hluta viðtalsins, sem birtur verður seinna í dag, ræðir Anton Ari um ákvörðunina að framlengja samning sinn við Breiðablik á dögunum.

Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner