Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óvissa með Gylfa - Hrósar Viktori fyrir hugarfarið
Gylfi fór meiddur af velli gegn Stjörnunni.
Gylfi fór meiddur af velli gegn Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örlygur kom vel inn í liðið á mánudag.
Viktor Örlygur kom vel inn í liðið á mánudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ekroth glímir við meiðsli á tá.
Ekroth glímir við meiðsli á tá.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson missti af leik Víkings og ÍA á mánudag vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins í leiknum gegn Stjörnunni í síðustu viku.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir meiðslin ekki alvarleg en er ekki viss hvenær miðjumaðurinn geti snúið aftur á völlinn.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 -  0 ÍA

„Staðan á Gylfa er ágæt, það er einhver vöðvi í lærinu sem hann hefur verið að bras með. Hann stífnaði upp í leiknum. Fyrir leikinn gegn Stjörnunni var óljóst hvort hann myndi ná að spila en hann fann mikinn bata á milli daga og þ.a.l. var hann klár. Síðan stífnaði þetta upp í leiknum og hann finnur fyrir þessi. Okkur finnst engin ástæða til þess að þrýsta á eitt eða neitt á þessum tímapunkti. Við erum með góðan og breiðan hóp og góða leikmenn til að koma inn í staðinn. Það er mikilvægt að hann geti náð sér að fullu, æft á fullu og losnað við þennan verk í stað þess að vera djöflast á þessu á tímapunkti sem við þurfum ekki að vera í því. Ég er ekki með neina dagsetningu, það þarf að sjá til hvernig þetta bregst við, hvernig viðbrögðin verða þegar hann byrjar að æfa. Þetta er óljóst en ég efast um að þetta verði til lengri tíma," segir Sölvi.

Þjálfarinn býr svo vel að í leikmannahópi hans eru gæðaleikmenn sem tilbúnir eru að koma inn í liðið þegar menn detta út. Daníel Hafsteinsson og Tarik Ibrahimagic byrjuðu á miðjunni og Viktor Örlygur Andrason kom svo inn á sem varamaður og bæði skoraði og lagði upp gegn Skagamönnum.

„Við erum mjög sterkir á miðjunni, það eru hörkuleikmenn sem koma inn fyrir Gylfa og sýndu hversu megnugir þeir eru."

„Viktor Örlygur sýndi hversu öflugur hann er með innkomu sinni, þurfti ekki langan tíma til þess að stimpla sig inn í leikinn. Hann byrjaði á hægri kanti, fór svo inn á miðjuna og endaði úti vinstra megin. Hann er fjölhæfur og skólabókardæmi hvernig þú átt að gera þetta þegar þú ert ekki að byrja leiki. Hann er mikill liðsmaður hann Viktor og hefur alltaf verið. Þetta er akkúrat það sem við viljum sjá."


Jóhannes Kristinn Bjarnason kom einnig inn á sem varamaður í leiknum og á bekknum var Aron Elís Þrándarson, svo breiddin er talsverð.

Oliver Ekroth og Stigur Diljan Þórðarson glíma áfram við meiðsli á tá og er óvíst hvenær þeir snúa aftur.

„Þetta eru leiðinleg meiðsli, eru svo lítil en hafa svo mikil áhrif. Þetta er „bara" táliður en það fer svo mikill kraftur í gegnum þennan lið þegar þú ert að spila fótbolta. Við gætum sprautað og keyrt þá í gang sem myndi kannski leiðast út í stærra vandamál seinna meir. Við erum varkárir, viljum að menn sjái vel um sig og líði vel," segir Sölvi.

Íslandsmeistararnir eru með tíu stig eftir fjórar umferðir og næst á dagskrá er útileikur gegn Keflavík á sunnudag.
Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir
Slapp
banner
banner
banner