Sarah Elnicky, til vinstri, er tekin við Völsungi af Aðalsteini Jóhann sem er hægra megin á myndinni.
Á laugardaginn fer Lengjudeild kvenna af stað. Við á Fótbolta.net fengum alla þjálfara og fyrirliða í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
Við byrjum á að fara yfir liðin þrjú sem er spáð neðstu þremur sætunum þetta sumarið.
Við byrjum á að fara yfir liðin þrjú sem er spáð neðstu þremur sætunum þetta sumarið.
10. sæti: Völsungur (22 stig)
Sæti í fyrra: 3. sæti í 2. deild
Völsungur er spáð neðsta sæti Lengjudeildar kvenna fyrir komandi sumar og fer inn í mótið við nokkuð óvenjulegar aðstæður. Liðið fékk staðfest fyrir nokkrum mánuðum síðan það myndi taka sæti í deildinni, eftir að ÍH ákvað að draga lið sitt úr keppni. Völsungur hafði endað í þriðja sæti 2. deildar í fyrra og fær því þetta tækifæri nokkuð óvænt. Undirbúningurinn hefur því ekki verið jafn hefðbundinn og hjá öðrum liðum og það gæti haft áhrif þegar mótið fer af stað. Niðurstaðan í Mjólkurbikarnum, þar sem liðið tapaði 7-0 fyrir FHL, bendir til þess að verkefnið verði krefjandi frá fyrstu umferð. Þá hefur orðið breyting á hliðarlínunni þar sem Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, sem stýrt hefur liðinu undanfarin ár, er farinn til Þór/KA. Stóra spurningin er einfaldlega hvort Völsungur sé tilbúið í þetta skref upp á við en þjálfarar og fyrirliðar eru sammála um að þetta verði mjög erfitt.
Lykilmenn: Mafer Contreras og Birna Karen Kjartansdóttir
Mafer, eins og hún er kölluð, er landsliðskona frá Gvatemala. Mafer hefur áður spilað á Íslandi en hún spilaði með liði Hauka og kemur með mikla reynslu inn á miðjuna hjá Völsungi. Birna Karen er þá öflugur varnarmaður sem kom frá Þrótti en hún hefur áður spilað í Lengjudeildinni með Augnabliki.
Gaman að fylgjast með: Guðný Helga Geirsdóttir
Guðný Helga er fædd árið 2010 en er þrátt fyrir það fyrirliði Völsungs. Auður Ósk Kristjánsdóttir og Ísabella Anna Kjartansdóttir munu þá spila frammi hjá Völsungi en þær eru báðar fæddar 2011 og eru í yngri landsliðunum.
Þjálfarinn segir - Sarah Elnicky
„Þetta er einfaldlega mjög spennandi fyrir okkur. Við bjuggumst ekki við að vera í þessari deild í byrjun árs, þannig að það er engin sérstök pressa á okkur, en maður vill alltaf spila á sem hæstu stigi. Við erum með mjög ungt en metnaðarfullt og drífandi lið. Markmiðið hefur alltaf verið það sama hjá okkur, að vaxa og þróast sem lið. Við hlökkum mikið til að hefja tímabilið og sjá hvert þessi vegferð leiðir okkur."
9. sæti: Tindastóll (43 stig)
Sæti í fyrra: 9. sæti í Bestu deildinni
Tindastóli er spáð 9. sæti eftir að hafa leikið í Bestu deildinni undanfarin ár. Breytingarnar á leikmannahópnum hafa verið umtalsverðar og ljóst að liðið er á ákveðnum tímamótum. Verkefnið fram undan snýst nánast um að byggja upp nýtt lið frá grunni. Stærsta breytingin er á hliðarlínunni þar sem Donni hefur látið af störfum og tekið við U19 landsliðinu. Það skilur eftir stórt skarð, enda hafði hann stýrt liðinu í nokkur ár og öllum hnútum kunnugur. Nú þarf að finna nýja leið, bæði innan vallar og utan. Verkefnið framundan snýst ekki aðeins um úrslit heldur einnig uppbyggingu. Það getur tekið tíma að móta nýjan kjarna og fá réttu blönduna til að smella, sérstaklega eftir svona miklar breytingar. Spurningin er hvort liðið nái að halda sér í deildinni á meðan sú vinna fer fram, eða hvort það stefnir í annað erfitt tímabil þar sem fallbaráttan verður í forgrunni.
Lykilmenn: Bryndís Rut Haraldsdóttir og Tea Lundmark
Bryndís Rut spilaði með Tindastóli í Mjólkurbikarnum á dögunum í sigri gegn ÍR og það er vonandi fyrir Stólana að hún verði mikið með í sumar og leiði þetta lið áfram enda er erfitt að finna sterkari karaktera en hana í íslenska boltanum. Tea Lundmark er reynslumikill markvörður frá Svíþjóð sem þarf að eiga gott sumar í markinu á Króknum.
Gaman að fylgjast með: Hrafney Lea Árnadóttir
Hrafney Lea er mjög svo efnilegur leikmaður sem hefur verið í úrtökum fyrir yngri landslið Íslands. Hún kemur til með að fá ágætis hlutverk í sumar þrátt fyrir ungan aldur.
Þjálfarinn segir - Juan Carlos Dominguez Requena
„Ég skil alveg, og liðið líka, af hverju spáin er eins og hún er. Það hafa orðið miklar breytingar á hópnum og við erum að byggja upp eitthvað nýtt. Aðalmarkmiðið hjá okkur er að halda sæti okkar í deildinni og við vitum að það verður krefjandi verkefni. Á sama tíma sjáum við þetta sem tækifæri til að þróa hópinn, keppa í hverjum leik og verða sterkari eftir því sem líður á tímabilið."
„Þetta er líka ákveðin hvatning fyrir okkur til að sanna að spáin sé röng."
8. sæti: Selfoss (47 stig)
Sæti í fyrra: 1. sæti í 2. deild
Selfoss er spáð 8. sæti Lengjudeildar kvenna eftir að hafa farið í gegnum miklar breytingar síðustu ár. Liðið hefur þurft að byggja sig upp að nýju eftir fall úr efstu deild árið 2023, þar sem liðið hafði verið fastagestur og meðal annars unnið bikarmeistaratitilinn. Fallið hélt svo áfram árið 2024 þegar liðið datt niður um aðra deild til viðbótar. Síðasta sumar í 2. deild reyndist hins vegar mikilvægt fyrir uppbygginguna. Þar fengu ungar og efnilegar leikmenn dýrmæta reynslu og liðið sýndi styrk með því að tryggja sér sæti upp á ný. Nú er verkefnið annars eðlis, að festa sig í sessi á hærra stigi og taka næstu skref í þróuninni. Áherslan verður líklega á að ná stöðugleika og safna stigum snemma til að forðast að dragast inn í mikla fallbaráttu. Á sama tíma er ljóst að þetta er hluti af lengra ferli þar sem markmiðið er að byggja ofan á reynsluna og þróa liðið áfram til framtíðar í sterku umhverfi. Jonathan Glenn er nýr þjálfari liðsins og hann er með reynslu í þessari deild sem er jákvætt.
Lykilmenn: Juliana Marie Paoletti og Stevie Madonna Reynolds
Paoletti er sóknarsinnaður miðjumaður sem kom til Selfoss frá ÍA á síðasta tímabili og spilaði frábærlega með liðinu í 2. deild. Hún er mikill leiðtogi og sterkur karakter. Stevie Reynolds er þá sóknarmaður sem er að koma úr háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið að gera góða hluti. Hún verður mikilvæg fyrir Selfoss í sumar og þarf að standa sig vel.
Gaman að fylgjast með: Björgey Njála Andreudóttir
Það eru nokkrir efnilegir og spennandi leikmenn í liði Selfoss. Björgey Njála átti gott sumar með Selfossi í fyrra og tekur núna næsta skref upp á við. Hún hefur verið hluti af yngri landsliðum Íslands og er spennandi leikmaður.
Þjálfarinn segir - Jonathan Glenn
„Þetta kemur okkur ekki á óvart. Við erum nýkomnar upp um deild, með ungan hóp og í miðri uppbyggingu, þannig að utan frá séð er eðlilegt að setja okkur í 8. sæti."
„En innan hópsins sjáum við lið sem er að bæta sig með hverri viku, hungrað í að keppa og óhrætt við hvaða andstæðing sem er. Áherslan hjá okkur er að verða betri í hverjum einasta leik og sanna að við eigum heima í þessari deild."




