Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaraspáin - Stígur inn í tímavél
Diego Simeone.
Diego Simeone.
Mynd: EPA
Gylfi Tryggvason og Óskar Smári Haraldsson.
Gylfi Tryggvason og Óskar Smári Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Við fengum ruglaðan fótboltaleik í Meistaradeildinni í gær þegar Paris Saint-Germain vann 5-4 sigur á Bayern München í fyrri leik liðanna í undanúrslitunum.

Við fáum líklega ekki eins skemmtilegan leik í kvöld, eða hvað?

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
Atletico Madrid 0 - 0 Arsenal
Diego Simeone stígur inn í tímavél í dag og mætir dökkhærðum, yfir meðallagi huggulegum þjálfara sem er mættur á erfiðan útivöll með það eina markmið að halda hreinu. Þetta fer 0-0.

Óskar Smári Haraldsson
Atletico Madrid 1 - 0 Arsenal
Verður mjög lokaður leikur. Arsenal stýra leiknum en fá að súpa sitt eigið meðal því Atletico skora eftir hornspyrnu og setja svo í lás.

Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Atletico Madrid 2 - 1 Arsenal
Simeone vill svara strax fyrir leikinn fyrr í vetur, öll orka hjá Atletico frá því að Orri Steinn tók lagið eftir leik hefur farið í þennan leik gegn Skyttunum. Það er ekkert undir heima fyrir hjá Ateti og þeir munu heldur betur mæta gíraðir til leiks. Arsenal mun fara skynsömu leiðina, reyna bíða eftir og sjá hvað þeir spænsku gera en ég held að draumaleikmaður Arsenal muni reynast enska liðinu erfiður. Þetta verður hörku fínn leikur og áfram hellingur undir í seinni leiknum. Alvarez skorar bæði mörk heimamanna og óvæntur Ödegaard fyrir gestina.

Staðan í heildarkeppninni:
Gylfi Tryggva - 28
Óskar Smári - 27
Fótbolti.net - 21
Slapp
banner
banner