Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Fyrsti svarti dómarinn til að starfa á úrslitaleik FA-bikarsins
Akil Howson.
Akil Howson.
Mynd: Premier League
Akil Howson verður fyrsti svarti dómarinn sem starfar á úrslitaleik FA-bikarsins, elstu og virtustu bikarkeppni heims.

Howson hefur verið valinn sem aðstoðardómari í úrslitaleik Chelsea og Manchester City sem fram fer á Wembley þann 16. maí.

Darren England verður aðaldómari á leiknum en það verður í fyrsta sinn sem hann dæmir bikarúrslitaleik. Hann var fjórði dómari á úrslitaleiknum í fyrra.

Auk Howson verður Tim Wood aðstoðardómari; Sam Barrott verður fjórði dómari og Peter Bankes VAR-dómari.

Fyrir hinn 40 ára gamla England verður þetta stór stund en hann gekki í gegnum erfiða tíma eftir stór mistök í leik Tottenham gegn Liverpool 2023. Þá var hann VAR dómari en gerði mistök sem leiddu til þess að mark Luis Díaz var ranglega dæmt af. Hann starfaði ekki á úrvalsdeildarleik í þrjá mánuði eftir mistökin.
Slapp
banner
banner
banner