Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   fim 30. apríl 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tveir lykilmenn framlengja í Laugardal
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Hannes Stefánsson og Eiríkur Þorsteinsson Blöndal hafa skrifað undir nýja þriggja ára samninga við Þrótt.

Baldur Hannes (2002) er uppalinn Þróttari og er fyrirliði liðsins. Hann hóf meistaraflokksferilinn með liðinu árið 2018 þegar hann kom við sögu í þremur leikjum í næst efstu deild. Hann kom við sögu í 16 leikjum í Lengjudeildinni síðasta sumar.

Eiríkur er uppalinn í Breiðabliki en gekk til liðs við Þrótt árið 2021.

Hann hefur verið algjör lykilmaður í liðinu allar götur síðan. Hann kom við sögu í öllum 24 leikjum í Lengjudeildinni síðasta sumar og skoraði þrjú mörk.



Slapp
banner
banner