Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   mið 29. apríl 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Eftirsóttur Tapsoba búinn að samþykkja nýjan samning
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Miðvörðurinn eftirsótti Edmond Tapsoba er búinn að samþykkja nýjan samning hjá Bayer Leverkusen.

Fabrizio Romano greinir frá þessu og hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn fræga á undirskriftina.

Þetta eru stórar fréttir fyrir ýmis félagslið í Evrópu sem hafa áhuga á Tapsoba, en þar má helst nefna Manchester United, Newcastle og Tottenham úr ensku úrvalsdeildinni.

Leverkusen hafnaði 40 milljón evru tilboði fyrir leikmanninn í janúar frá ónefndu félagi í ensku úrvalsdeildinni.

Tapsoba er 27 ára gamall og fær væna launahækkun með nýjum samningi. Núverandi samningur hans rennur út eftir tvö ár en ekki er greint frá hversu langur nýi samningurinn verður.

Tapsoba er lykilmaður í landsliði Búrkína Fasó, með 64 leiki að baki fyrir þjóð sína.

Leverkusen er í sjötta sæti þýsku deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir, aðeins tveimur stigum frá meistaradeildarsæti.

Tapsoba hefur verið hjá Leverkusen í sex og hálft ár og var í mikilvægu hlutverki á ótrúlegu tímabili undir stjórn Xabi Alonso 2023/24, þegar Leverkusen vann bæði þýsku deildina og bikarinn án þess að tapa leik. Eini leikurinn sem liðið tapaði það tímabilið var úrslitaleikur Evrópudeildarinnar gegn Atalanta.
Slapp
banner
banner