Stuðningsmaður Real Oviedo á Spáni hefur verið dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynþáttaníð í garð Marcus Rashford, sóknarmanns Barcelona.
Þá hefur hann fengið 900 evru sekt og bann frá fótboltavöllum í þrjú ár. Þá hefur honum verið bannað að starfa í menntun, kennslu, íþróttum og frístundatengdum störfum í þrjú ár og níu mánuði.
Rashford, sem er á láni frá Man Utd, spilaði allan leikinn þegar Barcelona vann 3-1 gegn Oviedo í september en hann lagði upp eitt mark.
Unglingur var dæmdur í sex vikna fangelsi fyrir kynþáttaníð í garð Rashford á samfélagsmiðlum eftir úrslitaleik EM 2021. Rashford, Jadon Sancho og Bukayo Saka urðu fyrir kynþáttaníði eftir að þeir klikkuðu á vítum í tapi Englands gegn Ítalíu í úrslitum EM það ár.




