Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Umboðsmaður Ugarte reynir að koma honum til Ítalíu
Ugarte spilar fyrir Manchester United.
Ugarte spilar fyrir Manchester United.
Mynd: EPA
La Gazzetta dello Sport, bleika blaðið, segir að umboðsmaður Manuel Ugarte sé að reyna að koma miðjumanninum til Ítalíu.

Stjörnuumboðsmaðurinn Jorge Mendes sér um málefni Ugarte og ku hafa rætt bæði við Juventus og AC Milan.

Ugarte, 25 ára, hefur ekki fengið mikinn spiltíma á Old Trafford á þessu tímabili og samtals leikið innan við þúsund mínútur fyrir Manchester United.

Manchester United er sagt hafa áhuga á Rafael Leao, leikmanni AC Milan, og því velt upp í Gazzettunni hvort félagið gæti boðið Ugarte sem hluta af tilboði í portúgalska landsliðsmanninn.

Í forgangi hjá Juventus er að landa Bernardo Silva sem verður samningslaus hjá Manchester City í sumar og mun þá yfirgefa þá ljósbláu.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner