Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rashford tilbúinn að helminga launin sín
Mynd: EPA
Marcus Rashford hefur mikinn áhuga á því að ganga til liðs við Barcelona í sumar og er tilbúinn til að taka á sig verulega launalækkun fyrir félagaskiptin.

Rashford hefur verið að gera flotta hluti á láni hjá Barcelona frá Manchester United og geta Spánarmeistararnir keypt kantmanninn fyrir 30 milljónir evra.

Börsungar eru þó ekki enn búnir að skuldbinda sig til að kaupa Rashford vegna flókinnar fjárhagsstöðu en kantmaðurinn er á ofurlaunum hjá Man Utd.

Hann fær um 400 þúsund evrur í vikulaun en Barca getur ekki leyft sér að greiða honum nema um helminginn af því ef það mun rætast úr félagaskiptunum.

Rashford er með 13 mörk og 13 stoðsendingar í 45 leikjum á tímabilinu en hann kemur oft inn af bekknum í seinni hálfleik þar sem Raphinha og Lamine Yamal eru með byrjunarliðssætin á köntunum þegar þeir eru við fulla heilsu.

Guillem Balague segir frá því í pistli á BBC að Rashford sé reiðubúinn til að gera ýmislegt til að fá samning hjá Barcelona. Hann gæti verið tilbúinn að helminga launin sín til að láta skiptin verða að veruleika.

   25.04.2026 21:35
Spánn: Titilinn færist óðum til Barcelona

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 33 28 1 4 87 30 +57 85
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 33 20 5 8 59 38 +21 65
4 Atletico Madrid 33 18 6 9 56 37 +19 60
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 33 11 11 11 45 43 +2 44
7 Getafe 33 13 5 15 28 34 -6 44
8 Real Sociedad 33 11 10 12 52 52 0 43
9 Osasuna 33 11 9 13 39 40 -1 42
10 Athletic 33 12 5 16 36 48 -12 41
11 Vallecano 33 9 12 12 33 41 -8 39
12 Valencia 33 10 9 14 37 48 -11 39
13 Espanyol 33 10 9 14 37 49 -12 39
14 Elche 33 9 11 13 44 50 -6 38
15 Girona 33 9 11 13 36 50 -14 38
16 Alaves 33 9 9 15 38 49 -11 36
17 Mallorca 33 9 8 16 41 51 -10 35
18 Sevilla 33 9 7 17 40 55 -15 34
19 Levante 33 8 9 16 37 50 -13 33
20 Oviedo 33 6 10 17 26 51 -25 28
Slapp
banner
banner