Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 18:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aston Villa vill fá Rashford aftur
Mynd: EPA
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Aston Villa hafi áhuga á því að kaupa Marcus Rashford frá Man Utd í sumara.

Rashford er á láni hjá Barcelona en spænska liðið getur keypt hann fyrir 26 milljónir punda í sumar. Barcelona mun líklega ekki nýta sér þann möguleika.

Spænska liðið hefur hins vegar áhuga á að fá hann aftur á láni fyrir næsta tímabil.

Unai Emery, stjóri Aston Villa, er mjög hrifinn af Rashford eftir að hann var á láni hjá liðinu seinni hluta síðasta tímabils þar sem hann skoraði fjögur mörk í 17 leikjum.

Hugur Rashford er að vera áfram á Spáni þar sem hann hefur spilað 45 leiki, skorað 13 mörk og lagt upp 10 mörk í öllum keppnum.
Slapp
banner
banner