Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vill fá Olise sama hvað það kostar og senda Gakpo í skiptum
Mynd: EPA
Jermaine Pennant, fyrrum leikmaður Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, er mikill stuðningsmaður Liverpool eftir að hafa leikið fyrir félagið í þrjú ár frá 2006 til 2009.

Hann hefur sína skoðun á framtíð liðsins og telur hægri kantmanninn Michael Olise vera fullkominn arftaka fyrir Mohamed Salah sem er á för frá félaginu í sumar.

„Liverpool farið út og sækið Olise strax, sama hvað það kostar. Hann er arftakinn fyrir Mo Salah. SAMA HVAÐ ÞAÐ KOSTAR. Hvaða upphæð sem er plús Gakpo," skrifaði Pennant á samfélagsmiðlinum X.

Pennant er duglegur að tjá sig um Liverpool á X en það eru tvær vikur liðnar síðan hann lét Ibrahima Konaté heyra það.

Þetta er heldur ekki í fyrsta sinn sem Pennant hvetur Liverpool til þess að losa sig við Gakpo, leikmann sem er ekki í miklu uppáhaldi hjá honum.

Pennant spilaði sjálfur sem kantmaður og skoraði 3 mörk í 81 keppnisleik með Liverpool, auk þess að gefa 18 stoðsendingar.


Slapp
banner
banner