Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 19:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Góður sigur hjá Sædísi og Örnu - Selma Sól nálgast endurkomu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sædís Rún Heiðarsdóttir var í byrjunarliði Valerenga þegar liðið vann 3-1 sigur á Stabæk í norsku deildinni í dag. Arna Eiríksdóttir spilaði seinni hálfleikinn.

Valerenga er með 10 stig í 2. sæti eftir fimm umferðir.


Selma Sól Magnúsdóttir var í hóp hjá Rosenborg í fyrsta sinn á tímabilinu þegar liðið vann Molde 1-0. Selma hefur verið að berjast við meiðsli í rúmt ár og er að snúa loks aftur.

Stórstjörnur Bayern voru hvíldar þegar liðið vann Werder Bremen 2-0 í þýsku deildinni. Liðið heimsækir Barcelona í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar um helgina. Fyrri leikurinn endaði með 1-1 jafntefli.

Glódís Perla Viggósdóttir spilaði síðustu tuttugu mínúturnar í dag. Bayern tryggði sér þýska deildartitilinn í síðustu viku.
Slapp
banner
banner
banner