Stórstjarnan og markamaskínan Erling Haaland, leikmaður Manchester City, hefur hlotið hörð viðbrögð í heimalandi sínu Noregi eftir að hafa leikið í auglýsingu fyrir bandaríska bjórframleiðandann Budweiser.
Budweiser er einn aðalstyrktaraðili HM sem fram fer í sumar og hefur sett af stað auglýsingaherferð þar sem Haaland og Jurgen Klopp eru helstu andlitin.
Budweiser er einn aðalstyrktaraðili HM sem fram fer í sumar og hefur sett af stað auglýsingaherferð þar sem Haaland og Jurgen Klopp eru helstu andlitin.
Auglýsingarnar bannaðar í Noregi
Auglýsingaherferðin nær til 40 landa en ekki til Noregs en þar eru áfengisauglýsingar bannaðar með lögum. Norski landsliðsmaðurinn Haaland hefur hlotið harða gagnrýni fyrir að vera andlit Budweiser.
„Mér finnst það furðulegt að einstaklingur sem hugsar mikið um heilsu, eins og Haaland gerir, ákveði að taka þátt í markaðsherferð fyrir áfengi. Hann spilar fyrir Noreg þar sem svona auglýsingar eru bannaðar," segir Inger Lise Hansen hjá forvarnarsamtökunum Actis við Dagbladet.
Hanne Cecilie Widnes hjá IOGT, öðrum forvarnarsamtökum, segist óska þess að norska fótboltasambandið hefði getað stöðvað þátttöku Haaland.
„Hann er hetja í augum margra ungmanna í mörgum löndum. Þetta er sorglegt," segir Widnes.
Talsmaður norska fótboltasambandsins segir hinsvegar að Haaland eigi fullan rétt á að gera samstarfssamning við Budweiser þó sambandið geti að sjálfsögðu ekki farið í samstarf við bjórframleiðendur vegnar reglna í Noregi.
„Budweiser hefur lengi verið alþjóðlegur styrktaraðili FIFA og er í fullum rétti á að markaðssetja sínar vörur í löndum þar sem slíkt er löglegt," segir Runar Pahr Andresen hjá norska sambandinu.





