Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. júní 2022 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pereira vill félagaskipti til Flamengo þrátt fyrir tilboð Fulham
Mynd: Getty Images

Framtíð brasilíska miðjumannsins Andreas Pereira er í lausu lofti en leikmaðurinn sjálfur vill halda áfram að spila fyrir Flamengo í heimalandinu.


Pereira er að gera góða hluti að láni hjá Flamengo þar sem hann er kominn með 9 mörk í 54 leikjum. Félagið vill halda honum og Pereira vill vera áfram en peningurinn er einfaldlega ekki til staðar.

Manchester United vill fá um 10 milljónir punda fyrir Pereira og er búið að samþykkja tilboð frá Fulham í leikmanninn.

„Ég er ekki sá sem fær að taka ákvörðun um framtíðina mína - Man United ræður henni. Ég vil vera áfram hjá Flamengo en fæ engu um það ráðið. Ég elska Flamengo," sagði Pereira, sem er 26 ára gamall og á eitt ár eftir af samningnum við Man Utd.

Hér fyrir neðan má sjá glæsilegt sigurmark sem Pereira skoraði í Copa Libertadores í dag. Flamengo voru heppnir að vinna 0-1 á útivelli.


Athugasemdir
banner
banner
banner