Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Werner gefur grænt ljós á félagaskipti til Bandaríkjanna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýski sóknarleikmaðurinn Timo Werner virðist vera á leið til New York Red Bulls sem leikur í bandarísku MLS deildinni.

New York hefur verið í viðræðum við RB Leipzig um félagaskipti Werner, sem á aðeins eitt ár eftir af samningi við þýska félagið.

Werner er 29 ára gamall og hefur verið hjá Tottenham síðustu tvö ár án þess að standast væntingar. Hann skoraði eitt mark í 27 leikjum á síðustu leiktíð.

Werner var einn af betri leikmönnum þýska boltans áður fyrr en hann missti dampinn við félagaskipti sín til Chelsea sumarið 2020.

Framherjinn fór úr því að skora 34 mörk í 45 leikjum fyrir Leipzig yfir í að gera 12 mörk í 52 leikjum hjá Chelsea. Hann hefur aldrei aftur náð gamla taktinum eftir það.

Werner var lykilmaður í þýska landsliðinu þar til fyrir fjórum árum en hann hefur ekki fengið að spila fyrir þjóð sína í tvö ár.

Werner myndi berjast við Eric Maxim Choupo-Moting, fyrrum leikmann Bayern og PSG, um byrjunarliðssæti í fremstu víglínu hjá New York.

New York er sem stendur í viðræðum við Leipzig og Werner sjálfan um félagaskiptin.
Athugasemdir
banner
banner