Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
EM U21: England varði titilinn í fjörugum úrslitaleik
Mynd: EPA
Mynd: EPA
England U21 3 - 2 Þýskaland U21
1-0 Harvey Elliott ('5)
2-0 Omari Hutchinson ('25)
2-1 Nelson Weiper ('45+1)
2-2 Paul Nebel ('61)
3-2 Jonathan Rowe ('92)

England mætti Þýskalandi í úrslitaleik Evrópumóts U21 árs landsliða og úr varð hörkuslagur.

Englendingar byrjuðu betur þar sem Harvey Elliott, miðjumaður Liverpool, tók forystuna snemma leiks með hnitmiðuðu skoti utan vítateigs.

Omari Hutchinson, sóknartengiliður Ipswich, tvöfaldaði forystuna 20 mínútum síðar eftir góða skyndisókn.

Englendingar voru sterkari aðilinn en sterkt lið Þjóðverja ógnaði einnig og minnkaði Nelson Weiper muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Weiper skoraði með frábærum skalla eftir verulega góðan undirbúning frá Paul Nebel úti á vinstri kantinum.

Nebel var svo aftur á ferðinni í síðari hálfleik þegar hann skoraði glæsilegt jöfnunarmark eftir laglegt einstaklingsframtak.

Hann jafnaði stöðuna í 2-2 og þurfti að grípa til framlengingar. Jonathan Rowe var skipt inn af bekknum og tók hann forystuna fyrir Englendinga á ný rétt rúmri mínútu síðar. Rowe skallaði boltann í netið eftir sturlaða fyrirgjöf frá Tyler Morton.

Þjóðverjar reyndu að svara fyrir sig í framlengingunni en fundu ekki glufur á skipulögðum varnarleik Englendinga. Lokatölur urðu því 3-2 fyrir England sem vinnur Evrópumótið í annað skiptið í röð.

Harvey Elliott og Charlie Cresswell voru einnig í liðinu sem vann EM 2023 og byrjuðu báðir úrslitaleikinn í kvöld.
Athugasemdir
banner