Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. september 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Richard Keogh mögulega frá keppni í 15 mánuði
Richard Keogh
Richard Keogh
Mynd: Getty Images
Richard Keogh, fyrirliði Derby, verður mögulega frá keppni í fimmtán mánuði vegna alvarlegra hnémeiðsla sem hann varð fyrir í bílslysi í síðustu viku.

Leikmenn og starfsmenn Derby fóru saman út að borða á þriðjudagskvöld en flestir leikmenn héldu heim á leið klukkan 20:00. Keogh og nokkrir aðrir leikmenn héldu hins vegar áfram að drekka áfengi fram eftir kvöldi og keyra ölvaðir heim.

Mason Bennett og Tom Lawrence, leikmenn Derby, hafa báðir verið ákærðir fyrir ölvunarakstur. Bennett og Lawrence voru ásamt Keogh í bifreið þegar þeir óku á staur.

Strax varð ljóst að tímabilið hjá Keogh væri á enda og nú er útlit fyrir að hann snúi ekki aftur á fótboltavöllinn fyrr en í desember á næsta ári.

Keogh er 33 ára gamall en hann hefur leikið með Derby síðan 2012. Þessi írski landsliðsmaður þekkir til á Íslandi en hann var á láni hjá Víkingi R. frá Stoke árið 2004.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner