Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. nóvember 2020 18:51
Victor Pálsson
Segir að Abraham þurfi að gera betur
Mynd: Getty Images
Jimmy Floyd Hasselbaink, fyrrum leikmaður Chelsea, var ekki hrifinn af Tammy Abraham í leik liðsins við Tottenham í gær.

Tottenham heimsótti Chelsea á Stamford Bridge en leiknum lauk með markalausu jafntefli í nokkuð rólegri viðureign.

Abraham fékk nokkur ákjósanleg tækifæri í leiknum en virkaði ekki sannfærandi fyrir framan mark gestanna.

„Að mínu mati þá verður Abraham að gera betur. Reece James getur ekki gert meira fyrir hann, boltarnir koma í réttu svæðin," sagði Hasselbaink.

„Skallaðu bara boltann. Það sama með hitt færið, það skiptir ekki máli hver þú ert því þetta eru frábærar fyrirgjafir fyrir framherja."

„Þú þráir þetta sem sóknarmaður, þetta er það sem þú vilt og treystir á. Hann þarf að gera betur."

Athugasemdir
banner
banner
banner