Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður Íslands, var svekktur eftir 3-0 tap Íslands gegn heimsmeisturum Argentínu.
Lestu um leikinn: Argentína 3 - 0 Ísland
„Það er svekkjandi að þetta endaði 3-0. Mér fannst við ná að halda ágætlega í boltann á köflum og við sköpuðum einhver færi en auðvitað fengu þeir líka sín færi. Þeir eru þvílíkt góðir, heimsmeistarar og allt það. Svekkjandi að tapa þessu og kannski fullstórt en svona er þetta. Þetta er seinasta test-ið áður en alvaran hefst í haust. Við verðum bara klárir þá,“ sagði Jón Dagur í viðtali við Fotbolti.net eftir leik.
Jón tók undir með Orra Steini, landsliðsfyrirliða að vendipunktur leiksins var þegar Lionel Messi mætti til leiks.
„Þegar kallinn kom inn á þá breytti hann þessu svolítið og sýndi kannski af hverju hann er lang bestur í heimi. Maður veit ekki alveg hvað maður á að segja, hann var bara því miður of góður eftir að hann kom inn á. Hann braut okkur alveg bara með fyrstu sendingunni, þá tók hann einhverja 8 leikmenn úr leik með einni sendingu og þeir fengu víti. Þá er þetta orðið 2-0 og við að elta enn þá meira,“ sagði Jón Dagur Þorsteinsson sem ræddi einnig um viðskilnaðinn í Brann og framtíðina sína. Viðtalið í heild má nálgast í spilaranum hér að ofan.
























