Luke Shaw, bakvörður Manchester United, er ekki í enska landsliðshópnum sem spilar í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar.
Smelltu hér til að sjá hópinn.
Smelltu hér til að sjá hópinn.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, valdi Ben Chilwell og Danny Rose fram yfir Shaw, sem var valinn leikmaður ársin hjá Manchester United. Hann segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að gera það.
„Það var ekki erfið ákvörðun. Ben Chilwell og Danny Rose hafa verið stórkostlegir," sagði Southgate.
„Þeir hafa báðir spilað einstaklega vel. Þeir gefa allt fyrir enska landsliðið."
Athugasemdir