,,Þetta var mjög góður sigur og mikilvægur. Við vorum ágætir seinustu mínúturnar í seinni hálfleik en þetta var samt mjög jafn leikur í byrjun, við eigum samt ennþá mikið inni," sagði Marteinn Briem leikmaður Víkings sem skoraði tvö mörk í 3-0 sigri á Þrótti í Víkinni í kvöld.
,,Það kemur eitthvað með öðru markinu og aðeins meira öryggi þegar líður á leikinn. Þetta var mjög jafn leikur og mjög hraður, boltinn var ekki mikið útaf í seinni hálfleiknum og ekki mikið af brotum og aukaspyrnum. Hann gekk mjög hratt, en fyrri hálfleikurinn var mun hægari og lítið að gerast," hélt hann áfram.
,,Ég er alveg sáttur með tvö móment hjá mér í leiknum en ég var ekkert sérstakur í fyrri, þetta skánaði allt í seinni," sagði Marteinn en þriðja markið skoraði hann með skoti alveg út við stöngina svo allir héldu að boltinn hafi farið í hliðarnetið utanvert.
,,Þetta var lauma, það tók enginn eftir þessu," sagði hann en var gat á netinu? ,,Þú verður að spyrja Frank, ég held að hann sé með þetta á hreinu."
Nánar er rætt við Martein í sjónvarpinu að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |






















