Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Hefi örugglega verið vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   mán 23. ágúst 2010 21:32
Kjartan Már Gunnarsson
Willum Þór: Hann var grunsamlega hægur í fótavinnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Frammistaða liðsins var feykilega góð í dag. Menn lögðu sig fram, spiluðu fínan fótbolta og leystu þröngu leikstöðuna mjög vel," sagði Willum Þór Þórsson þjálfari Keflvíkinga eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Stjörnunni í kvöld.

,,Við vorum agaðir í skipulaginu, unnum seinni boltana, vorum fljótir fram á við og sköpuðum fullt af færum. Einbeitingarleysi, sofandaháttur, blanda af aðstæðum og vindum gerir það að verkum að við fáum á okkur tvö mörk."

Lasse Jörgensen, markvörður Keflvíkinga, fékk högg og meiddist í síðari hálfleik. Hann hélt leik áfram og fékk á sig mark beint úr fyrirgjöf frá Halldóri Orra Björnssyni.

,,Hann var grunsamlega hægur í fótavinnunni og ákvörðuninni að stíga út úr markinu og þrengja geirann á markið í sendingarlínunni. Ég skal ekki segja, hann fékk högg á hökuna. Við mátum það þannig að hann gæti haldið áfram og vildum eiga skiptingarnar á útileikmennina og bíða og sjá til."

Keflvíkingar eru eftir þennan leik með 24 stig í sjötta sæti deildarinnar en liðið er með jafnmörg stig og Stjarnan í fimmta sætinu.

,,Fyrir þennan leik vorum við ákveðnir í því að Evrópusæti væri skammt undan og við yrðum að berjast eins og einn maður fyrir því. Eins og deildin er að spilast þá megum við ekkert missa móðinn í því. Þetta breytist allt í einni umferð."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner
banner