Ejub Purisevic, þjálfari Víkings í Ólafsvík, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær en hægt er að hlusta á það í spilaranum hér að ofan.
Ólafsvíkingar féllu úr Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Ólafsvíkingar féllu úr Pepsi-deildinni síðasta sumar.
„Oft þegar lið falla þá verða miklar breytingar og það hefur gerst hjá okkur. Við höfum misst sterka leikmenn og það verður örugglega erfitt að fylla í þeirra skörð," segir Ejub en meðal breytinga á liðinu er að markvörðurinn Arnar Darri Pétursson kom á láni frá Stjörnunni eftir að Einar Hjörleifsson lagði hanskana á hilluna.
„Við fengum mjög góðan markvörð til okkar í stað Einars. Hann er mjög áhugasamur og vill bæta sig. Ég fagna því að ungir íslenskir leikmenn eru til í að fara út á land."
„Við erum frekar fámennir þessa stundina. Við ætlum að bæta við okkur einhverjum leikmönnum en þeir verða ekki margir."
Hvernig lýst honum á 1. deildina á komandi sumri?
„Mér finnst Grindavík og ÍA í sérflokki og verða þar held ég. Vonandi verðum við í hópi þeirra liða sem geta verið í toppbaráttunni en ég held að deildin verði mjög jöfn. Grindavík og ÍA eru samt að mínu mati bestu liðin í deildinni."
„Það er ekki markmiðið að fara strax aftur upp. Okkar markmið er að geta keppt á móti flestum liðum í deildinni. Svo er bara að taka púlsinn um mitt mót og sjá hvort hægt sé að byggja ofan á þetta lið og fara aftur upp í úrvalsdeildina. Það var virkilega gaman í fyrra að vera í úrvalsdeildinni þó hlutirnir hafa ekki gengið alveg upp."
„Við verðum bara að sýna þolinmæði og byggja liðið upp. Ef tækifærið kemur að fara aftur upp eftir einhvern tíma þá er bara að nýta það."
Ejub hefur það markmið að þjálfa hjá stærra félagi í framtíðinni.
„Mér finnst ég ungur þjálfari þó ég hafi þjálfað lengi. Ég er hálfnaður með UEFA Pro námskeiðið og er að flýta mér hægt. Markmið mitt í framtíðinni er að þjálfa hjá öðrum liðum þar sem aðstæður eru betri. En ég á tvö ár eftir af samningi mínum hér og ætla að klára hann," segir Ejub Purisevic.
Athugasemdir



