AC Milan endurheimti annað sæti Serie A deildarinnar með sigri í opnum og skemmtilegum leik gegn Torino í dag.
Torino var sterkara liðið í fyrri hálfleik en miðvörðurinn Strahinja Pavlovic skoraði glæsilegt mark til að ná forystunni fyrir heimamenn. Boltinn skoppaði til hans eftir að varnarmaður Torino hafði skallað fyrirgjöf úr vítateignum og ákvað Pavlovic að láta bara vaða þrátt fyrir að vera alls ekki þekktur fyrir góða skottækni.
Boltinn flaug í slána og inn og fagnaði Pavlovic dátt með liðsfélögunum, en gestirnir frá Tórínó svöruðu með jöfnunarmarki fyrir leikhlé. Þar var Giovanni Simeone á ferðinni þar sem hann fylgdi eftir marktilraun Nikola Vlasic með marki af stuttu færi.
Staðan var jöfn í leikhlé og skoruðu miðjumennirnir Adrien Rabiot og Youssouf Fofana sitthvort markið með stuttu millibili í síðari hálfleiknum.
Þeir komu Milan í tveggja marka forystu með þessum mörkum og náðu gestirnir að minnka muninn þegar Vlasic skoraði örugglega úr vítaspyrnu eftir að Pavlovic gerðist brotlegur innan teigs.
Torino tókst ekki að jafna metin á lokakaflanum svo lokatölur urðu 3-2 fyrir Milan. Lærlingar Max Allegri eru fimm stigum á eftir toppliði Inter, sem á leik til góða gegn Fiorentina annað kvöld.
Torino er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 33 stig eftir 30 umferðir.
Fyrr í dag unnu nýliðar Cremonese gríðarlega dýrmætan sigur á útivelli gegn Parma.
Youssef Maleh skoraði laglegt mark til að taka forystuna fyrir Cremonese áður en Jari Vandeputte innsiglaði sigurinn eftir glæsilegan undirbúning frá Jamie Vardy.
Lokatölur urðu 0-2 og klifrar Cremonese upp úr fallsæti með þessum sigri. Cremonese er með jafn mörg stig og Lecce sem er í fallsæti, en betri markatölu.
Milan 3 - 2 Torino
1-0 Strahinja Pavlovic ('36 )
1-1 Giovanni Simeone ('44 )
2-1 Adrien Rabiot ('54 )
3-1 Youssouf Fofana ('55 )
3-2 Nikola Vlasic ('83 , víti)
Parma 0 - 2 Cremonese
0-1 Youssef Maleh ('54 )
0-2 Jari Vandeputte ('68 )
Athugasemdir

