,,Ég er gríðarlega sáttur og eins og ég sagði áðan við strákana 'þegar maður vaknaði við vondan draum í morgun og sér að liðin neðan okkur hafi unnið og við þá skyndilega komnir í fallsæti að þá þýddi ekkert annað. Bara krefjandi verkefni að mæta upp á Skaga og mæta næst stærsta liðinu á landinu í drulluerfiðum leik við erfiðar aðstæður, að halda hreinu og skora flott mark, það gerist ekki betra." sagði Páll Kristjánsson, þjálfari KV eftir 0-1 útisigur sinna manna á ÍA í kvöld.
,,Við djöfluðumst og börðumst, vorum skipulagðir og vörðumst vel, þeir fengu ekki færi í þessum leik, þeir dældu að vissu fullt af háum boltum inn í teig og það skapast alltaf ákveðin hætta ef þeir ná að reka pönnuna í boltann en þeir sköpuðu sér engin færi - við fengum færi." sagði Páll um hvað uppskar sigur KV í dag.
Mikið rót hefur verið á byrjunarliði KV en þeir gerðu fjórar breytingar á liði sínu frá síðasta leik.
,,Það er engin óskastaða að vera ekki búinn að finna sitt sterkasta lið eftir 9 umferðir. Þeir sem spiluðu í dag, þeir stimpluðu sig vel inn og að sjálfsögðu gera þeir tilkall til sætis í liðinu."
Hann talar einnig um breytingu á leikskipulagi, varnarleik liðsins og framhaldið í deildinni.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.























