Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Meistararnir vilja tvo frá Bologna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Napoli vann Ítalíumeistaratitilinn á sínu fyrsta tímabili undir stjórn Antonio Conte og ætlar Aurelio De Laurentiis eigandi að styrkja leikmannahópinn fyrir næstu leiktíð.

Conte er mjög hrifinn af tveimur leikmönnum úr liði Bologna sem vann ítalska bikarinn á dögunum, þeim Dan Ndoye og Sam Beukema.

Napoli er því sterklega orðað við þessa tvo leikmenn. Ndoye er 24 ára kantmaður á meðan Beukema er 26 ára miðvörður.

Fabrizio Romano greinir frá því að Napoli sé búið að setja sig í samband við Bologna til að spyrjast fyrir um leikmennina en segir ekki frá mögulegu kaupverði.

Talið er að Bologna vilji um 60 til 70 milljónir evra til að selja báða þessa leikmenn.

Þá er Napoli einnig að krækja í Kevin De Bruyne miðjumann belgíska landsliðsins sem rennur út á samningi hjá Manchester City í sumar.

De Bruyne gæti orðið algjör lykilmaður undir stjórn Conte og er Napoli einnig að gera nýjan samning við aðalmarkvörðinn sinn Alex Meret.

Nýr samningur Meret gildir til tveggja ára og fær hann um 200 þúsund evrur í mánaðarlaun, eftir skatt.
Athugasemdir
banner
banner