Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   þri 03. júní 2025 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Al-Hilal reynir við Osimhen og Éderson
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky á Ítalíu greinir frá því að sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal sé að reyna við minnst þrjá öfluga leikmenn úr ítalska boltanum um þessar mundir.

Al-Hilal hefur þegar náð samkomulagi við AC Milan um kaupverð á vinstri bakverðinum Theo Hernández, sem er sjálfur ekki sannfærður um að skipta yfir til Sádi-Arabíu þrátt fyrir að umtalsverð launahækkun sé í boði.

Þá er Al-Hilal í viðræðum við Ítalíumeistara Napoli um kaup á nígeríska framherjanum Victor Osimhen. Galatasaray er þó einnig með í þeirri baráttu. Osimhen hefur gert frábæra hluti á láni hjá Galatasaray eftir að hafa verið algjör lykilmaður í ógnarsterku liði Napoli, en hann virðist ekki vilja spila aftur fyrir ítalska stórveldið.

Að lokum hefur Al-Hilal einnig sett sig í samband við Atalanta til að reyna að kaupa brasilíska miðjumanninn Éderson, sem var eftirsóttur af Manchester City í fyrrasumar. Éderson er 25 ára gamall og er með tvö ár eftir af samningi hjá Atalanta. Hann er hugsaður sem svipaður leikmaður og Bruno Fernandes eftir að Al-Hilal mistókst að landa fyrirliða Manchester United þrátt fyrir góða tilraun.

Sky greinir einnig frá því að AC Milan sé reiðubúið til að reyna að kaupa Andrea Cambiaso frá Juventus ef Theo Hernández verður seldur. Þá er Milan einnig að skoða Luka Modric, króatíska miðjumanninn sem á fertugsafmæli í september, til að hjálpa við að fylla í skarðið sem Tijjani Reijnders skilur eftir sig þegar hann fer til Man City. Að lokum er kantmaðurinn knái Rafael Leao ekki falur fyrir minna en 100 milljónir punda eftir að FC Bayern sýndi honum áhuga.
Athugasemdir
banner