Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 04. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vilja Joao Pedro til að styrkja sig fyrir Meistaradeildina
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports segir frá miklum áhuga Newcastle United á brasilíska sóknarleikmanninum Joao Pedro.

Joao Pedro er afar fjölhæfur leikmaður sem getur spilað sem fremsti sóknarmaður, í holunni þar fyrir aftan eða úti á kanti.

Hann hefur átt í vandræðum með leikbönn en þegar hann er í stuði er hann einn besti leikmaður Brighton.

Joao Pedro hefur einnig lent upp á kant við liðsfélaga oftar en einu sinni og er tilbúinn til að skipta um félag.

Það eru mörg félög áhugasöm um að nýta sér krafta Joao Pedro en Newcastle er talið meðal fremstu liða í kapphlaupinu. Bruno Guimaraes, leikmaður Newcastle, er til að mynda einn af nánustu vinum Joao Pedro.

Joao Pedro vill þó einungis skipta til liðs þar sem hann fær öruggt byrjunarliðssæti í fremstu víglínu. Það er ekki raunin hjá Newcastle, þar sem gæti reynst afar erfitt að taka byrjunarliðssætið af Alexander Isak.

Newcastle er í leit að sóknarleikmanni til að styrkja hópinn fyrir komandi átök í Meistaradeild Evrópu.

Joao Pedro á þrjú ár eftir af samningi við Brighton og er félagið talið vilja fá um 70 milljónir punda til að selja hann.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 31 15 10 6 56 43 +13 55
4 Aston Villa 31 16 6 9 42 37 +5 54
5 Liverpool 31 14 7 10 50 42 +8 49
6 Chelsea 31 13 9 9 53 38 +15 48
7 Brentford 31 13 7 11 46 42 +4 46
8 Everton 31 13 7 11 37 35 +2 46
9 Fulham 31 13 5 13 43 44 -1 44
10 Brighton 31 11 10 10 41 37 +4 43
11 Sunderland 31 11 10 10 32 36 -4 43
12 Newcastle 31 12 6 13 44 45 -1 42
13 Bournemouth 31 9 15 7 46 48 -2 42
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 31 7 12 12 37 48 -11 33
16 Nott. Forest 31 8 8 15 31 43 -12 32
17 Tottenham 31 7 9 15 40 50 -10 30
18 West Ham 31 7 8 16 36 57 -21 29
19 Burnley 31 4 8 19 33 61 -28 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner