Það er einn leikur á dagskrá í Þjóðadeildinni í kvöld þegar Þýskaland tekur á móti Portúgal í undanúrslitum.
Þjóðverjar komust áfram eftir afar nauman sigur gegn Ítalíu á meðan Portúgalir rúlluðu yfir Dani til að tryggja sér þátttöku í undanúrslitunum.
Hægt er að búast við afar spennandi slag og mun sigurliðið spila úrslitaleikinn við annað hvort Spán eða Frakkland 8. júní.
Spánn og Frakkland eigast við í undanúrslitaleik annað kvöld, sem fer fram í Stuttgart, en úrslitaleikurinn mun vera leikinn í München.
Taplið kvöldsins mun spila við taplið morgundagsins í úrslitaleik um þriðja sætið í Þjóðadeildinni.
Leikur kvöldsins
19:00 Þýskaland - Portúgal
Athugasemdir