Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson átti mjög gott ár með norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg og hefur verið verðlaunaður með sæti í A-landsliðinu sem mætir Svíþjóð í vináttulandsleik í Abu Dhabi 21. janúar.
Leikmannahópur Íslands verður kynntur á fréttamannafundi á morgun en Sarpsborg opinberaði það á heimasíðu sinni á föstudag að Guðmundur yrði í hópnum.
Leikmannahópur Íslands verður kynntur á fréttamannafundi á morgun en Sarpsborg opinberaði það á heimasíðu sinni á föstudag að Guðmundur yrði í hópnum.
„Ég frétti þetta bara á netinu og var alveg steinhissa. Við verðum bara að vona að þetta sé satt, annars er þetta helvíti aulalegt!" sagði Guðmundur í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu í gær.
„Það hefur verið draumur manns að fá tækifæri og maður er spenntur fyrir þessu. Ef maður vill ná sem lengst þá vill maður komast í A-landsliðið líka. Frá því að maður byrjaði að fylgjast með fótbolta fór maður að mæta á landsleiki."
„Þegar maður sá að þessi leikur væri í Abu Dhabi fannst manni það líka spennandi. Það er gaman að upplifa og sjá heiminn."
„Mér hefur gengið mjög vel með U21-landsliðinu og fín reynsla sem maður hefur náð í þar. Það er mikilvægt að fá sjálfstraust upp á það að gera." sagði Guðmundur en fleiri ungir leikmenn munu væntanlega fá tækifæri í Abu Dhabi þar sem ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða.
Gummi seðill
Hefðin hjá A-landsliðinu er að menn séu vígðir inn með því að þurfa að syngja lag fyrir hópinn. Guðmundur er frábær söngvari og spurning hvort ekki sé rétt að vígja hann inn með öðrum hætti?
„Á að flengja mig fyrir að kunna að syngja? Á að refsa mér fyrir það? Á maður ekki bara að njóta þess að geta sungið og taka eitthvað flott lag fyrir strákana?," sagði Guðmundur léttur.
Frammistaða hans með Sarpsborg hefur vakið athygli stærri félaga og sögusagnir verið í gangi um að hann gæti fært sig um set.
„Fæst orð bera minnsta ábyrgð. Maður hefur heyrt af áhuga en svo er oft langt milli þess að það sé áhugi og það komi tilboð. Ég er með tveggja ára samning í viðbót og það þyrfti því að koma tilboð sem félagið myndi sætta sig við."
Hægt er að hlusta á þetta stórskemmtilega viðtal í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Guðmundur meðal annars um gælunafnið „Gummi seðill" og markaþurrð sína.
Athugasemdir

