Barcelona vill fá inn sóknarmann í sumar til að fylla skarð Robert Lewandowski og augljóst er að Julian Alvarez, sóknarmaður Atletico Madrid, er efstur á óskalistanum.
Meiri vafi er þó hvort félagið sé með bolmagn til að fá hann, mögulega þarf það að skoða ódýrari lausnir.
Vedat Muriqi hjá Mallorca, Alexander Sörloth hjá Atletico Madrid og Joao Pedro hjá Chelsea hafa þar verið nefndir.

Sky Sports fjallar um það í dag að Barcelona hafi áhuga á hinum nítján ára gamla Junior Kroupi, framherja Bournemouth. Enska félagið hyggst ekki selja leikmanninn unga í sumar en Manchester City er meðal áhugasamra félaga.
Þrátt fyrir að hafa bara byrjað tuttugu leiki á tímabilinu er Kroupi með 12 mörk í 32 leikjum. Hann skorar að meðaltali á 134 mínútna fresti en Frakkinn kom til Bournemouth frá Lorient fyrir átján mánuðum.
Koupi hefur spilað fimm U21 landsleiki fyrir Frakka og skorað þrjú mörk. Hann er vanur því að spila sem fremsti maður en getur einnig leikið á vinstri kanti.
Barcelona are another club interested in signing Bournemouth striker Junior Kroupi this summer.
— Sky Sports News (@SkySportsNews) May 5, 2026
Bournemouth, however, are not looking to sell Kroupi in the next window ???? pic.twitter.com/qUyXnZdj9a